9.2.15

Blogg að vakna til lífsins!

Eins og sést, hefur bloggið verið í langri pásu hjá mér! Ég hef verið duglegri að pósta á Facebook síðu Stúdíó Douglas. Endilega kíkið þangað! En planið er að endurlífga þetta blogg von bráðar - er ekki áhugi fyrir því?
Facebook síða Stúdíó Douglas

Helstu fréttir eru þær að Stúdíóið er komið í nýtt og glæsilegt húsnæði í Engihjalla 8. Flutningar voru í nóvember sl. en stefnt er að því að halda formlegt opnunarpartí fljótlega! Nánar um það síðar :)

Aðrar fréttir eru svo að ég er með 20% afslátt af brúðkaupsmyndatökum ef bókað er fyrir 15. febrúar nk og 15% afslátt af fermingarmyndatökum ef bókað er fyrir 20. febrúar.

Hér eru Stella og Guðjón sem giftu sig síðastliðið haust í Lágafellskirkju. Þarna eru þau á leið upp á Lágafellið þar sem Guðjón bar upp bónorðið. Fallegur haustdagur og ótrúlega hlýtt (að einhverju leyti kannski út af gosmengun frá Holuhrauni!).


20.11.11

Húni Georg


Það er kominn tími til að ég birti hér myndir af litla drengnum mínum sem er allt í einu orðinn eins árs! Húni Georg er fæddur 19.10.10 og er auðvitað algjör gullmoli.


Hér er hann aðein 11 daga gamall mættur í stúdíóið til mömmu sinnar...



3 mánaða kútur...



6 mánaða töffari...



9 mánaða og orðinn ljóshærður...



...og 1 árs!





21.10.11

ný vefsíða



Loksins fann ég tíma til að uppfæra löngu úrelta vefsíðu Stúdíó Douglas. Bara nokkuð ánægð með útkomuna sérstaklega þar sem ég gerði þetta alveg sjálf og kunni eiginlega voða lítið í vefsíðugerð, er þó reynslunni ríkari núna!

Ég vona að þið hafið gaman af því að skoða síðuna og sérstaklega myndaalbúmin.

Nú er allt að fyllast hjá Stúdíó Douglas fyrir jólin - um að gera að hafa samband sem allra fyrst til að bóka jólamyndatökuna!

Svo er "vinaleikur" í gangi á Facebook - endilega takið þátt! 
Dregið verður 25.október um ókeypis myndatöku.

24.6.11

Emelía Ásta

Ég var svo heppin að fá að fylgjast með litlu Emelíu Ástu vaxa og dafna fyrsta árið hennar í þessum heimi. Mánaðarlegar myndatökur af litlum krílum er með því skemmtilegra sem ég geri.


Stoltir foreldrar

Emelía Ásta fæddist 13. október 2009. Hún kom fyrst til mín 2 mánaða.

3 mánaða


4 mánaða

5 mánaða

6 mánaða

7 mánaða

8 mánaða

9 mánaða

10 mánaða

11 mánaða

1 árs!
Emelía Ásta kom í afmælismyndatökuna sína 3 dögum áður en ég fæddi Húna Georg. Ég var upprunalega sett 13.október, á afmælisdag Emelíu en átti hann 19.okt. Nú er Húni minn orðinn 8 mánaða og ekki langt í að þessi sæta stelpa verði 2 ára, tíminn líður allt of hratt!

Flott fjölskylda! Til hamingju með dömuna :)




8.4.11

systkin

Þessar sætu systur, Auður Rós og Freydís Lilja, komu til mín í myndatöku í fyrra...



Auður Rós...


Freydís Lilja...


Systkinin Árni Marínó og Agla Móey komu til mín í haust...


Árni Marinó...


Agla Móey...


31.3.11

Mætt á ný

Nú er ég komin af stað aftur eftir fæðingarorlof og nóg að gera í fermingum þessa dagana. Hér eru sýnishorn af fermingarbörnunum sem komu til mín í fyrravor...

Thelma...

Við fórum líka aðeins út að mynda...



Rannveig...


Þórdís...


og Hermann...




12.9.10

fæðingarorlof



Nú er Stúdíó Douglas á leið í fæðingarorlof og er því ekki hægt að komast í myndatöku fyrr en á næsta ári, líklegast í mars-apríl. Endilega hafið samband ef þið viljið vera á lista og ég hef samband þegar ég fer að taka niður bókanir á nýju ári.


Ég vil líka benda á ef þú vilt panta myndir/jólakort úr þinni myndatöku þá er ekki seinna vænna - ég er enn að afgreiða pantanir og verð það eitthvað áfram en það borgar sig að hafa samband sem fyrst ef pöntunin á að afgreiðast fyrir jól.


Eins eru gjafabréfin alltaf til sölu - tilvalin jólagjöf!


Gjafabréfin eru á 15% afslætti til 1.október 2010!


Notaðu tækifærið og verslaðu jólagjöfina snemma :)


........

Barnið á að koma í heiminn eftir tæpan mánuð og pabbinn var svo góður að taka af mér bumbumyndir um daginn. Það er gaman að prófa stundum að vera hinum megin við vélina!

9.9.10

Helgi Fannar seinni hluti

Nú er Helgi Fannar orðinn 1 árs og búinn að koma til mín mánaðarlega í myndatöku frá því hann var 9 daga gamall.

Myndir frá fyrstu 6 mánuðunum eru í eldri færslu hér



Hér eru svo myndir af Helga 7-12 mánaða:


7 mánaða:

8 mánaða:

9 mánaða:

10 mánaða:

11 mánaða:

1 árs afmælisstrákur!


Og fjölskyldan:




Það er búið að vera svo gaman að mynda þennan skemmtilega strák - takk kærlega fyrir samveruna Þóra, Adam og Helgi Fannar!

22.7.10

Bella Magg


Snillingurinn hún Berglind Magnúsdóttir (Bella Magg) sér um hár og förðun fyrir mig þegar konur óska eftir því fyrir myndatökuna. Þá kemur hún í stúdíóið til mín og leikur listir sínar.

Bella kom sjálf í myndatöku til mín í fyrra og tekur sig auðvitað glæsilega út...






20.7.10

boudoir dömur

Nú er allt uppbókað hjá Stúdíó Douglas út árið 2010. Ljósmyndarinn er á leið í fæðingarorlof í haust en mun byrja að taka við einhverjum verkefnum aftur í mars-apríl 2011.

Ekki vera feimin við að skilja eftir komment á blogginu - alltaf gaman að heyra hvað fólki finnst!

Þessar flottu konur komu til mín í boudoir myndatöku í fyrra...